25. júní 2022
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum uppsetningu nýs aðstöðuhúss fyrir siglingaklúbbinn Nökkva. Húsið verður staðsett á fyllingu við núverandi svæði Nökkva við Drottningarbraut. Um er að ræða tæplega 403 m² CLT einingarhús teiknað og hannað af AVH ehf. Kynningarfundur og vettvangsskoðun verður kl. 13.00 þann 26. júní 2020 og er skráning á tölvupóstfangið umsarekstur@akureyri.is Framkvæmdir hefjast við undirritun samnings og eru verklok áætluð 1. júní 2021. Útboðsgögn verða aðgengileg í gegnum tölvupóstfangið umsarekstur@akureyri.is frá 19. júní 2020. Tilboðum skal skila fyrir kl. 11:00 þann 10. ágúst 2020 á skrifstofu Umhverfis- og mannvirkjasviðs á 4. hæð í Ráðhúsi Akureyrar og verða tilboð opnuð á sama stað og tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

16. september 2020
Á mánudaginn síðast liðinn var opið hús í Hofi á Akureyri þar sem tillaga að deiliskipulagi fyrir Holtahverfi norður var kynnt. Markmiðið með nýju deiliskipulagi er að bjóða upp á nýjar lóðir í bæði gömlu og nýju hverfi á einu fallegasta svæði Akureyrar. Svæðið býður upp á útsýni til allra átta og er til dæmis í nágrenni við falleg útivistarsvæði, smábátahöfn, verslun og atvinnusvæði. Einnig er mikilvægt að bæta umferðarskipulag á svæðinu og huga að gönguleiðum barna í skóla- og íþróttastarf frá nýrri íbúðarbyggð. Í stuttu máli: Ný íbúðabyggð norðaustan við Krossanesbraut – allt að 280 íbúðir í blandaðri byggð fjölbýlishúsa, raðhúsa, parhúsa og einbýlishúsa. Ónotuð svæði innan núverandi byggðar skipulögð. Umferðarskipulag bætt með með áherslu á gönguleiðir í skóla- og íþróttastarf. Útivistarsvæði og nýir stígar um hverfið. Áhersla á vistvænt skipulag, umhverfisvænar samgöngur, lýðheilsu, græn svæði, sjálfbærni, fjölbreyttar þarfir mismunandi hópa og vel skipulögð atvinnusvæði í tengslum við íbúðabyggð. Skoða má tillöguna og senda inn athugasemd á vef Akureyrarbæjar: www.akureyri.is/is/frettir/holtahverfi-nordur-ny-og-spennandi-ibudabyggd

12. júní 2020
Byggingalistaverðlaun Akureyrar 2020 hlaut Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt FAÍ, AVH ehf. og Bergfesta byggingarfélag fyrir útfærslu fjölbýlishúsa við Halldóruhaga 8, 10, 12 og 14. Húsagerðin er tveggja hæða fjórbýlishús með útitröppum. Húsunum er skipt upp í tvíbýliseiningar, tveim og tveim saman með opnum stigum á milli. Útistigar njóta skjóls undir þaki og á bak við rimlaverk og eru því ekki meginatriði í útliti húsanna eða götumyndinni. Húsaeingarnar eru skásettar þannig að þær mynda fjölbreytta og áhugaverða húsaröð, sem er undirstrikuð með sérstöku meginformi húsanna,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

8. október 2018
Glerárvirkjun II var formlega gangsett á föstudaginn. „Virkjunin getur séð fimm þúsund heimilum á Akureyri fyrir rafmagni og um leið fjölgar útivistarmöguleikum í Glerárdal.“ (frétt af ruv.is ) Myndirnar eru úr fréttum frá akureyri.is og vísir.is AVH sá um alhliðahönnun á stöðvarhúsinu.

20. júlí 2018
Í fyrra var skrifað undir samstarfssamning milli Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins (RML) og AVH til að aðstoða bændur í nýbyggingum og breytingum á núverandi mannvirkjum. Á myndinni eru Runólfur Sigursveinsson og Anton Örn Brynjarsson að handsala samstarfssamning AVH og RML. Frá því að RML var stofnað 2013 hefur bútækniráðgjöf til bænda verið takmörkunum háð varðandi skil á teikningum til yfirvalda. RML hafði verið að leita að heppilegum samstarfsaðila varðandi það að koma ráðgjöfinni í þann farveg að hægt sé að bjóða bændum þjónustu frá hugmynd að fullbyggðu gripahúsi. RML hafði vantað samstarf við teiknistofu með skrifstofur nálægt viðskiptavinum sunnan og norðan heiða. Þá náðust samningar við AVH sem er fyrirtæki sem getur skilað öllum tilskildum teikningum til yfirvalda. Ætlunin er að teikningarnar verði unnar í grunninn af RML en kláraðar af AVH í fullu samráði við bútækniráðgjafa RML, varðandi aðbúnað og vinnuumhverfi, sem ætti að minnka hönnunarkostnað. Frétt var um málið í Bændablaðinu þann 3. nóvember 2017 . (Mynd tekin af vef Bændablaðsins)

26. október 2017
AVH tók þátt í opinni hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í sveitarfélaginu Árborg. 17 tillögur bárust í samkeppnina frá íslenskum og erlendum arkitektastofum. AVH hlaut viðurkenningu fyrir áhugaverða tillögu og dómnefndarálit má sjá á pdf skjali . Anna Margrét Hauksdóttir, Arnþór Tryggvason og Pétur Jónsson töku á móti viðkenningunni á síðastliðnum þriðjudegi á Selfossi.