Heilsugæslan opnar í sunnuhlíð
24. júní 2025
Ný og vel útbúin heilsugæslustöð fyrir Akureyri og nærsveitir opnar í Sunnuhlíð 12. Á stöðinni verður öll almenn læknaþjónusta, hjúkrunarmóttaka, mæðravernd, ungbarnavernd og önnur þjónusta fyrir íbúa á Akureyri og nærsveitarfélög. Nýja heilsugæslan er sérhönnuð utan um starfsemina, en miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu sem er um 1700 fm að stærð.
AVH sá um arkitektahönnun og samhæfingarvinnu.
Mikil ánægja er með nýju heilsugæsluna í Sunnuhlíð samkvæmt frétt á Akureyri.net (https://www.akureyri.net/is/flokkur/heilsugaeslan/mikil-anaegja-med-nyju-heilsugaesluna).
Myndir hér að neðan fegnar að láni frá Akureyri.net, ásamt renderingum frá okkur.
https://www.akureyri.net/is/flokkur/heilsugaeslan/heilsugaesla-her-og-onnur-thar-myndir








