Við sérhæfum okkur í að hanna skilvirkar og sveigjanlegar lausnir fyrir fjölbreytta starfsemi – til að styðja við vöxt og árangur.


AVH ehf er framsækin hönnunarstofa á sviði arkitektúrs, verkfræði og hönnunar. Fyrirtækið var formlega stofnað árið 1974 undir nafninu Teiknistofa Hauks Haraldssonar sf., en fékk núverandi heiti árið 2003. Frá stofnun hefur AVH starfað að fjölbreyttum verkefnum um allt land fyrir bæði einkaaðila og opinbera aðila.


AVH er alhliða teiknistofa sem sér um arkitekta-, burðar- og lagnateikningar fyrir mannvirki af öllum stærðum. Á stofunni starfar reynslumikið og sérhæft starfsfólk með áratuga þekkingu á öllum þáttum mannvirkjagerðar. Á síðastliðnum áratugum hefur AVH hannað fjölda bygginga og tekið þátt í samkeppnum með góðum árangri í samstarfi við fjölbreytta aðila.


AVH vinnur út frá þeirri meginhugsun að góð hönnun snúist um að skapa rými og umhverfi sem styðja við daglegt líf, bæta notagildi og auka lífsgæði. Í verkefnum er lögð áhersla á skýrt skipulag, samspil formgerðar og efnisvals og lausnir sem falla vel að samhengi og stað.


AVH leitast við að þróa lausnir sem eru bæði endingargóðar og hagkvæmar í rekstri, með tilliti til umhverfis og framtíðarnotkunar. Stofan hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og opinberra bygginga og leggur ríka áherslu á fagmennsku, samvinnu og metnað í allri vinnu sinni.

Starfssvið


Alhliða hönnun bygginga og mannvirkja

AVH kemur að öllum þáttum mannvirkjagerðar. AVH notast við BIM tækni þar sem öll samhæfing og breytingar eru gerð auðveldari.

Arkitektúr hönnun

Hönnun bygginga, þar á meðal innra skipulag, notagildi, útlit, grunnmyndir, efnisnotkun, áferð, ljós og skuggi.

Hönnun burðarvirkis

Alhliða útreikningur á burðarvirkjum.



Hönnun vatns-, hita-, frárennslis- og loftræsilagna

Almenn hönnun á öllum lagnakerfum í byggingum.

Þrívíddarvinnsla

Gerð þrívíddarlíkana, myndvinnsla og gerð myndbanda.

Áætlunargerð

Magntölur, kostaðaráætlanir, þarfagreining, sviðsmyndir (scenario planning).

Verkumsjón og eftirlit

Sjáum um verkumsjón og eftirlit á stórum sem smáum verkstöðum. Gerum einnig ástandskoðun á eldra húsnæði.

Útboð framkvæmda

Gerum öll útboðsgögn fyrir byggingaframkvæmdir.

Skipulagshönnun

Gerð og breytingar á aðalskipulagi, hverfisskipulagi, rammaskipulagi og deiliskipulagi. Rannsóknarvinna og skýrslugerð fyrir skipulagsgerð.

Hönnunarstjórn

Hönnunarstjórn á bæði stórum og smáum verkum.

BIM stjórnun

Samræming og uppbygging stafræns hönnunarlíkans fyrir skýra yfirsýn og skilvirka samvinnu hönnuða.

Viðurkenningar

2020

Byggingarlistarverðlaun Akureyrarbæjar

Halldóruhagi 8, 10, 12, 14

2017

Viðurkenning fyrir áhugaverða tillögu

Hjúkrunarheimili á Selfossi, opin hönnunarsamkeppni

2017

Byggingarlistarverðlaun Akureyrarbæjar

Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð

20004

1. verðlaun

Leikskólinn við Helgamagrastræti, Akureyri

2002

1. verðlaun

Stækkun Síðuskóla, Akureyri

2001

1. verðlaun

Leikskólinn við Hólmatún

2000

Byggingalistarverðlaun Akureyrarbæjar

Giljaskóli, Akureyri

1998

1. verðlaun

Toyota, Akureyri

1996

1. verðlaun

Félagslegar íbúðir við Snægil, Akureyri

1991

1. verðlaun

Íbúðir fyrir aldraða við Lindarsíðu, Akureyri

1986

Sýning Kunstverein í Münster 

Verkið Postamt in Meschede valið á sýningu hjá Kunstverein í Münster að undangenginni samkeppni

1985

Arkitektabíenal í Feneyjum

Verkið Villa Farsetti valið til sýningar á Arkitektabíenalnum í Feneyjum að undangenginni alþjóðlegri samkeppni

Markmið


  • Að sýna frumkvæði og vera leiðandi þjónustufyrirtæki á sínu sviði


  • Að annast og hafa yfirumsjón með allri hönnun innan fyrirtækisins


  • Að vinna faglega og skila verkum í háum gæðaflokki


  • Að hafa gott samstarf við alla samstarfsaðila og stuðla að góðum samskiptum við aðra hönnuði, verkkaupa og framkvæmdaaðila


  • Að gæta hagsmuna verkkaupa


  • Að stuðla að góðum starfsanda innan fyrirtækisins og símenntun starfsfólks


  • Að starfa samkvæmt lögum, reglugerðum og siðareglum


Stjórnskipulag

AVH er einkahlutafélag



Aðaleigendur eru:

Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt 
Anton Örn Brynjarsson framkvæmdastjóri 
Fanney Hauksdóttir yfir arkitekt
Kári Magnússon byggingafræðingur

Samstarfsaðilar

Fólkið