Nýr bú­setu­kjarni rís í Hnoðra­holti

20. apríl 2026

Það var sannkölluð gleðistund þegar fyrstu skóflustungurnar að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Haustbraut í Hnoðraholti voru teknar.

Um er að ræða sjö íbúða búsetukjarna með sérinngangi í hverja íbúð. Hönnun húsnæðisins og verkefnið í heild sinni styður við markmið um sjálfstæða búsetu og aukin lífsgæði í heimabyggð. Búsetukjarninn verður staðsettur í Hnoðraholti, þar sem lögð er áhersla á gott umhverfi og útsýni.


Íbúðirnar, sem eru sjö talsins, eru hver og ein með sérinngang, góða forstofu og rúmgóða geymslu. Þær eru bjartar með hárri lofthæð í stofurými og möguleika á lítilli verönd fyrir framan hverja íbúð. Starfsmannarými eru vel skipulögð og styðja við starfsemina í heild.


Verkefnið er talið mikilvægt skref í uppbyggingu þjónustu við fatlað fólk og er markmiðið að skapa hlýlegt og aðgengilegt heimili þar sem íbúum líður vel. Stefnt er að því að búsetukjarninn verði tekinn í notkun haustið 2027.


AVH sér um alhliða hönnun verkefnisins.