Opnun búsetukjarna

Á mánudaginn 6. nóvember 2023, var búsetukjarninn við Brekkuás 2 formlega opnaður við hátíðlega vígsluathöfn.
Við Brekkuás 2 í Ásahverfi í Garðabæ er sjö íbúða búsetukjarni fyrir fatlað fólk, ásamt starfsmannaaðstöðu.
Byggingin verður á einni hæð, staðsteypt og einangruð að utan, klædd með timburklæðningu, heildarstærð 587,6 m2.
AVH sá um hönnunina og hönnunarstjóri var Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt. Landslag ehf sá um landslagshönnun lóðar, Lumex sáum verkfræðiráðgjöf raflagna og Örugg verkfræðistofa sá um brunahönnun hússins. Gunnar Bjarnason ehf. sá um að byggja húsið.
Bygging búsetukjarnans er hluti af stefnu bæjarins um áframhaldandi uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk samhliða fjölgun annarra búsetuúrræða og fækkun herbergjasambýla.


