Nökkvi
Verksvið
Alhliða hönnun
Ár
2021
Staðsetning
Akureyri
Stærð m2
403 m²
Staða
Klárað
Ný aðstaða siglingaklúbbsins Nökkva er staðsett við sjávarsíðuna og er hönnuð með það að markmiði að styrkja starfsemi klúbbsins og bæta aðstöðu fyrir iðkendur. Húsið er ætlað fjölbreyttri starfsemi klúbbsins og nýtist fyrir aðstöðu starfsfólks, búningsaðstöðu, félagsstarf, geymslu og viðgerðir.
Hönnun hússins tekur mið af sterkri tengingu við sjóinn og landslagið, þar sem stórar opnanir í byggingunni tengja hana við umhverfi sitt. Efnisval er einfalt og endingargott, með áherslu á timbur og hráa áferð sem fellur vel að umhverfinu.







