Menningarhúsið Berg

Verksvið

Alhliða hönnun

Ár

2009

Staðsetning

Dalvík

Stærð m2

864 m²

Staða

Klárað

Menningarhúsið Berg í Dalvíkurbyggð hýsir fjölbreytta starfsemi og er ætlað að skapa sveigjanlega og vandaða umgjörð utan um menningarlíf staðarins.

Formgerð byggingarinnar er skýr og frumleg, þar sem flæðandi rúmmál mótar kaffistofu og forrými að sal og bókasafni. Formið vísar í smárann, merki sparisjóðanna, og tengir þannig bygginguna við staðbundið samhengi og merkingu.