Leikskólinn við Helgamagrastræti er rekinn samkvæmt Hjallastefnunni og þjónar um 140 börnum.
Hönnun byggingarinnar tekur mið af starfseminni, með áherslu á skýr rýmistengsl, öruggt og aðgengilegt umhverfi og fjölbreytt leik- og námsrými. Rýmin eru skipulögð til að styðja við sjálfstæði barna, samveru og fjölbreytt námsferli í daglegu starfi.