Við Kirkjubraut 20 á Seltjarnarnesi er búsetukjarni með sex sérbýlum og starfsmannaaðstöðu sem samanstendur af dagstofu, eldhúsi og snyrtingu. Áhersla er lögð á að skapa heimilislegt og aðgengilegt umhverfi þar sem öryggi, þægindi og sjálfstæði íbúa eru í fyrirrúmi.
Byggingin er á einni hæð, staðsteypt og klædd timbri. Skipulag byggingarinnar byggir á skýrri rýmisgreiningu þar sem einkarými og sameiginleg rými mynda jafnvægi milli næði og samveru.