Verkefnið felur í sér fimm íbúða raðhús þar sem hver íbúð er hönnuð fyrir allt að fjögurra manna fjölskyldu. Skipulag byggir á skýru og hagkvæmu rými, með þremur svefnherbergjum og opnu alrými þar sem stofa og eldhús mynda sameiginlegt hjarta heimilisins. Stoðrými eru samþætt með áherslu á góða nýtingu og einfalt daglegt flæði.
Byggingin er reist úr krosslímdum timbureiningum (CLT) og klætt álklæðningu sem tryggir endingargott og viðhaldslétt yfirborð, ásamt skýru og nútímalegu yfirbragði.