Hjúkrunarheimili við Vestursíðu

Verksvið

Alhliða hönnun

Ár

2012

Staðsetning

Akureyri

Stærð m2

553 m²

Staða

Klárað

Búsetuúrræði með áherslu á aðgengi, heimilislegt umhverfi og skýra rýmisheild. Íbúðir eru um 36 m², með rúmgóðri snyrtingu og aðstöðu fyrir hjálpartæki, auk sér útisvæðis.

Skipulag byggir á beinum tengslum milli einkarýmis og sameiginlegra svæða, þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda félagslegt hjarta heimilisins. Öll rými tengjast miðrými með fjölbreyttri þjónustu og starfsemi.

Byggingin er á einni hæð með góðu aðgengi og tengingu við gróin útisvæði sem umlykja húsið. Áhersla er lögð á hlýlegt og persónulegt umhverfi sem styður vellíðan og félagsleg tengsl íbúa.