Heilsugæsla HSN Sunnuhlíð

Verksvið

Alhliða hönnun

Ár

2024

Staðsetning

Akureyri

Stærð m2

1700 m²

Staða

Klárað

Heilsugæslustöð fyrir Akureyri og nærsveitir við Sunnuhlíð 12 er staðsett á efri hæð verslunarkjarnans Sunnuhlíðar þar sem húsnæðið hefur verið endurhannað og stækkað sérstaklega til að mæta þörfum starfseminnar. Húsnæðið er um 1700 fermetrar að stærð og samanstendur að hluta af nýbyggingu sem tengist eldri byggingu á staðnum.


Í stöðinni er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta fyrir íbúa Akureyrar og nærsveita, þar á meðal almenn læknaþjónusta, hjúkrunarmóttaka, mæðravernd og ungbarnavernd. Hönnun húsnæðisins leggur áherslu á björt og opin rými sem styðja við skilvirkt starfsumhverfi og góða þjónustu við notendur.