Húsið að Gröf IV í Eyjafjarðarsveit er steypt bygging klædd viði sem fellur vel að umhverfi sínu. Hönnunin byggir á einföldu og skýru formi þar sem efnisval og litir taka mið af náttúrunni í kring.
Stórar opnanir ramma inn útsýni bæði inn og út Eyjafjörðinn og skapa sterka tengingu milli innra rýmis og landslags. Þar myndast samspil arkitektúrs og náttúru sem mótar heildstæða upplifun.