Giljaskóli

Verksvið

Arkitekta hönnun

Ár

1996

Staðsetning

Akureyri

Stærð m2

4.720 m²

Staða

Klárað

Markmiðið var að hanna heildstæða og reisulega skólabyggingu sem jafnframt býr yfir fjölbreytni og hlýleika, þar sem form, ásýnd og notagildi styðja skýrt við starfsemi skólans. 


Til að auðvelda áfangaskiptingu og tryggja góða dagsbirtu í sem flestum rýmum er myndaður inngarður í miðju byggingarinnar, með gróðri og spegiltjörn sem skapar skjólgott og rólegt umhverfi fyrir nemendur og starfsfólk.


Efnis- og litaval tekur mið af notkun hússins með áherslu á endingu, einfalt viðhald og heildstæða ásýnd.