Dvergaholt 1

Verksvið

Alhliða hönnun

Ár

2026

Staðsetning

Akureyri

Stærð m2

906 m²

Staða

Í vinnslu

Við Dvergaholt 1 er fyrirhugað tveggja hæða fjölbýlishús með kjallara, alls 10 íbúðir. Byggingin er steypt og klædd álklæðningu sem veitir endingargott, viðhaldslétt og nútímalegt yfirbragð.

Skipulag byggir á skýrum og vel skilgreindum rýmum þar sem áhersla er lögð á góða birtu, hagkvæmt flæði og tengingu milli íbúða og sameiginlegra rýma. Fjölbreyttar íbúðastærðir tryggja að byggingin henti breiðum hópi fólks, með áherslu á sveigjanleika og þægilega daglega notkun.