Aðalgata 14

Verksvið

Alhliða hönnun

Ár

2025

Staðsetning

Ólafsfjörður

Stærð m2

798 m²

Staða

Klárað

Við Aðalgötu 14 á Ólafsfirði hefur eldri bankahúsnæði verið endurhannað og aðlagað að nýrri starfsemi sem hótel með veitingasal og heilsulind. Verkefnið felst í að aðlaga núverandi byggingu að nýrri starfsemi og umbreyta rýmum.


Með aðeins sjö herbergi, horfum við á gæði umfram magn. Hvert smáatriði er hannað með það í huga. Á tveimur efstu hæðum hússins eru gistieiningar sem hannaðar eru með áherslu á rólegt andrúmsloft og þægindi. Á jarðhæð er veitingasalur og í kjallara er heilsulind ásamt búnaðargeymslu.