AVH - avh.is

AVH hef hefur hannað fjölmargar byggingar síðastliðin 30 ár. Samstarfsaðilar hafa verið margir og höfum við tekið þátt í samkeppnum með ágætis árangri. Hér á síðunni getur að líta sýnishorn af okkar verkum ásamt almennum upplýsingum um fyrirtækið.

Fréttir

Útboð - Þjónustuhús við Oddeyrarbryggju, Akureyri.

Þjónustuhús
Þjónustuhús

Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í að byggja þjónustuhús við Oddeyrarbryggju, Akureyri. Verktaki skal framkvæma jarðvinnu, steypa upp grunn, reisa hús, innrétta, ganga frá utan húss sem innan og fullgera húsið samkvæmt útboðsgögnum.  Verkið nær til endurbóta á þeim hluta af lóðinni sem er næst byggingunni ásamt breytingum á girðingu.

Innréttingar og laus búnaður er ekki innifalinn í verkinu.

Helstu stærðir:              Hús  163,2 m2      536,7 m3 

                                     Lóð  384,0 m2


 

Útboðsgögn verða afhent hjá AVH ehf arkitektúr-verkfræði-hönnun, Kaupangi, Mýrarvegi, Akureyri frá og með föstudeginum 9.október 2009.

Útboðsgögn eru á geisladiski og kosta kr. 5.000.-.

Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hafnasamlags Norðurlands föstudaginn 23.október 2009 kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.


 

 





Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn