Nýtt þjónustuhús fyrir skemmtiferðaskip.

Nýtt þjónustuhús
Nýtt þjónustuhús fyrir skemmtiferðaskip við Oddeyrarbryggju er óðum að taka á sig endanlega mynd og eru áætluð verklok nú í lok maí.
AVH sá um hönnun hússins og arkitektar þess eru Fanney og Anna Margrét Hauksdætur. Aðalverktaki er Sigurður Björgvin Björnsson.

